30. nóvember 2008 klukkan 21:28
Já ég er hundleiðinleg ég veit.
Ég gafst upp á þessu bloggar.is.
Langaði að prófa nýtt og veit ég verð duglegri að blogga þar, það er líka aðeins öðruvísi.. ég fíla það.
Ætla samt að hafa þessa opna ennþá útaf myndunum og minningargreinunum og svona, er ennþá að læra á hitt.
Bless bloggar.is
www.thurabjorg.blog.is
Þuríður Björg Wiium Árnadóttir
18. nóvember 2008 klukkan 20:46
Jább, hið næstum ómögulega hefur gerst.
Ég ákvað að blogga því ég er einstaklega löt í dag.
Ég fór svo lítið í skólann að tíminn eiginlega bara líður EKKI því ég hef svo lítið að gera, eða þannig. Er reyndar búin að skrifa eitthvað í annarri ritgerðinni sem ég á að skila en nenni ekki meir í dag.
Ég setti upp jólaseríu áðan, svo virkaði hún ekki þegar ég setti aftur í samband, þannig að ég er í fílu við hana og ætla ekki að setja hina upp, Kristófer getur gert það þegar hann kemur heim frá Grenivík, múha.
Jólin eru alveg að koma ! 36 dagar eða eitthvað ! Ég get ekki beðið!
Ég fór heim um helgina og það var svo ljúft. Ég vildi helst ekki koma aftur, langaði bara að vera búin með prófin og komin heim í fjörðinn fagra að baka smákökur og prjóna með mömmu. Hlakka svo mikið til að komast heim og þurfa ekkert að hugsa um að læra og bara slappa af, búið að vera eitthvað svo mikið stress í gangi, alltof mikið að læra. EN það er bara ein og hálf vika eftir og svo fjögur próf sem ég hef svosum ekki áhyggjur af, er búin að vera nokkuð dugleg að læra í haust. Ein önn eftir og þá er þetta BÚIÐ. Hlakka til, en samt ekki því það tekur bara meira við, dæs.
Stelpurnar mínar næstum allar að koma næstu helgi, og já ég á AFMÆLI á föstudaginn, trúi því varla. Þetta verður geggjuð helgi, bara að hafa stelpurnar hér og djamma loksins, hef ekki gert mikið af því þessa önnina, slöpp ég.
Jólagjafir? það eru allir að spurja hvað mig langi í í jólagjöf..
Mig langar bæði í mjúka pakka og harða.
Langar í BÆKUR, ævisögur, reynslusögur, ástarsögur eða sakamálasögur.
Mig langar í augnskugga, í alvöru já ég á enga.
Svo langar mig í eitthvað mjúkt, elska mjúkt.. eitthvað prjónað, mm
Langar líka í handryksugu en ég þarf svosum ekki nauðsynlega á henni að halda... er ekki að nenna svona heimilisdótsgjöfum, ég á allt sem ég þarf, nema hannski handþeytara.. æji ple. Samt alltaf gaman að fá eitthvað sætt, æji mér er alveg sama.. hugurinn sem gildir! Ég þarf engar gjafir, bara að komast heim og fá rjúpur og horfa á Maríu Björt og Ásdísi Fjólu opna sína pakka, þá er ég góð. Hlakka til að njóta fyrstu jólanna hennar Ásdísar Fjólu, svo styttist í nýja krílið, og krílið hennar Írisar, hlakka svo til !! Verst að Andri og Sólveig komist ekki heim, en ég get huggað mig við það að ég VEIT ég verð dugleg að heimsækja þau þegar krílið kemur, víi.
Þetta yndislega ár er að verða búið, sorglegt.
een ég ætla að læra og bíða eftir kagglinum mínum.
Bless
Þura sem hlustar á eitt og eitt jólalag. Það máá..
Þuríður Björg Wiium Árnadóttir
25. október 2008 klukkan 12:04
Jæja mér hefur tekið hið óhugsandi, að vekja þessa síðu upp aftur! 23 komment .. þetta er bara eins og í gamla daga!
Ég sit hérna inni í stofu og ég þori varla að horfa út um gluggann, það er svo mikill snjór! Ég gæti vel farið út og búið til snjóhús 
Það er allt gott að frétta, ég fór til miðils í fyrradag. Ég mæli með því ef ykkur langar til miðils að fara til Skúla, hann er ótrúlegur. Allt sem hann sagðir skildi ég. Ásgerður langamma var ekki nógu ánægð með það hvað ég er löt að læra, svo ég ætla að gera henni greiða (já ég veit og mér líka) og læra meira heima
.
Mig langar svo heim á Vopnó, og í Egilsstaði að hitta mússurnar mínar, og til rvk að hitta mússurnar mínar þar. Ekki hægt að gera allt í einu nei, var að spá í að fara heim næstu helgi en ég er að fara í myndatöku í Mývatnssveit líklega á sunnudeginum þannig að það er spurning hvernig það eigi að reddast. Við Sonja erum svo að spá í að fara suður þarnæstu helgi eða eitthvað og kíkja á stelpurnar, versla og leika okkur. Verður án efa skemmtilegt!
Ég , Kristó, Hilli & Rakel fórum í leikhús í gær, á Músagildruna, fínt leikrit alveg.. má samt ekkert segja um það svo að.. mætið bara. En það var mjög gaman sko, alltaf gaman að faraí leikhús. svo er sálin í kvöld börnin mín? á ekki að mæta og djamma!! Ekki oft orðið sem það er almennileg hljómsveit í Sjallanum, nota tækifærið!
Mér tókst að fljúga á hausinn um daginn hérna fyrir utan, oh helvítis hálka! Ég er enn að drepast í mjöðminni, vona að enginn hafi séð til mín 
Vá mér finnst ég vera farin að bulla bara..
Ætla að reyna að finna einhvern til að koma með mér í sund, langamma sagði líka að ég ætti að vera duglegri að fara í sund og heitan pott.
Over and out.
Já, lag dagsins.. hmm ..
Please don't stop the rain - James Morrison.
If it's gonna be a rainy day
There's nothing we can do to make it change
We can pray for sunny weather
But that won't stop the rain
Feeling like you got no place to run
I can be your shelter 'til it's done
We can make this last forever
So please don't stop the rain
Þuríður Björg Wiium Árnadóttir
20. október 2008 klukkan 22:40
Pælingar, væri gaman að fá álit frá fleirum :)...
Nánar
Þuríður Björg Wiium Árnadóttir
18. október 2008 klukkan 16:10
Ég veit hreinlega ekki afhverju ég er að blogga því það virðist enginn lesa þetta en okey !
Seinast helgi var ÆÐI. Var heim frá fimmtud til sunnud, það var skírn á laugardaginn og fékk litla músin mín nafnið Ásdís Fjóla, rosa ánægð með þetta fallega nafn og ég elska þetta litla barn, get alveg sagt það hér og nú að ég myndi gera ALLT í heiminum fyrir frændsystkini mín þrjú og bráðum fjögur. Það var bara best að vera heima og dúllast með stelpunum mínum og vera með mömmu og pabba og hafa Berglind og Villa heima.. hlakka svo til jólanna að það er ekki fyndið! Búin að vera í jólaskapi síðan að snjórinn kom, hann er reyndar löngu farinn aftur. Ég, pabbi og Kristó fórum svo út á sjó á sunnudaginn og við veiddum í frystinn, alltaf jafn gaman.
Ég er löt, tók aldeilis á því í ræktinni áðan.. nenni ekki að detta í sukkið aftur, hehe. Bjó reyndar til mars íssósu í gær og við fengum okkur svo MIKINN ís að ég er enn með samviskubit. Er svo bara búin að vera að taka til, róleg helgi.. Ívar og Petra kíktu á okkur í gær, geðveikt gaman að sjá þau :) Kannski maður kíki á kaffihús í kvöld eða eitthvað.. stelpur til? Ef þið eruð að lesa þetta sem ég efast um ! haha 
Allavega, Sálin í sjallanum næstu helgi og ég vil fá Heiðrúnu hingað !!! Allir að styrkja Heiðrúnu svo hún komist til mín, taakk. Annars er ég að spá í að fara í egs eða suður helgina eftir það... eða kannski bara spara og vera heima? Nei langar of mikið í egs að hitta alla og langar suður að kaupa jólagjafir, spurning um að bíða aðeins með það samt! haha.
Æji ég nenni þessu ekki.. ætla að horfa á ManUtd VONANDI drullu tapa.. því að mínir menn eru svo að MEIKA ÞAÐ. Elska það.
Bless þið öll. ást frá Kjaló.
Smá myndir ;
okey get ekki sett þær inn.. kann ekki? Skoðið bara:
www.barnaland.is/barn/6855
www.barnaland.is/barn/6191
þá sjáiði hvað eg á falleg og æðisleg frændsystkini :)
Þuríður Björg Wiium Árnadóttir
07. október 2008 klukkan 13:04
Já maður veit hreinlega ekki hvernig maður á að snúa sér hérna á litla Íslandi þessa dagana. Eina sem ég ætla að gera er að krossleggja fingur og ekki eyða neinu, hehe. Ég segi bara sem betur fer á ég pening, vona að hann sé bara örugglegur þar sem hann er :o glúbb.
Annars er allt gott að frétta, fór suður um þarsíðustu helgi, verslaði örlítið, aðalega í IKEA! Svo kom snjórinn og meðfylgjandi leiðindi = slabb, kluldi og alltofmikiðkúr, það er sem betur fer búið að hlýna aftur, þá nennir maður einhverju. Fórum svo vestur um helgina og núna er ég 10 kg þyngri en fyrir helgi, takk Bylgja
en þá er ekki annað að gera en vera enn duglegri í ræktinni! Maður er nú svo duglegur, þarf ekki að spyrja að því! Það er brjálað að gera í skólanum, ritgerðir, próf, fyrirlestrar.. þetta blessaða miðannamat að fara að detta inn, þá er alltaf brjálað að gera. Ég get ekki beðið eftir 12 des og að fara heim og baka með mömmu og þrýfa og hafa það aldeilis gott
. Ég er að fara heim á fimmtudaginn, í Skírn hjá litlu snúllunni minni á laugardaginn, hlakka svooo til að hitta þau öll og geta loksins hætt að kalla hana litlu snúllu. Þetta verður YNDISLEG helgi, ég finn það á mér!
annars nenni ég ekki meir.. bara láta vita að ég er ekki alveg hætt að blogga sko !
bestu kveðjur til Íslendinga frá bókasafninu í VMA.
Kristján Tryggva og landafræðin bíða, VÚBBÍ!
Bleeess..
Þuríður Björg Wiium Árnadóttir
07. október 2008 klukkan 13:03
Já maður veit hreinlega ekki hvernig maður á að snúa sér hérna á litla Íslandi þessa dagana.
Eina sem ég ætla að gera er að krossleggja fingur og ekki eyða neinu, hehe. Ég segi bara sem betur fer á ég pening, vona að hann sé bara örugglegur þar sem hann er :o glúbb.
Annars er allt gott að frétta, fór suður um þarsíðustu helgi, verslaði örlítið, aðalega í IKEA! Svo kom snjórinn og meðfylgjandi leiðindi = slabb, kluldi og alltofmikiðkúr, það er sem betur fer búið að hlýna aftur, þá nennir maður einhverju. Fórum svo vestur um helgina og núna er ég 10 kg þyngri en fyrir helgi, takk Bylgja

en þá er ekki annað að gera en vera enn duglegri í ræktinni! Maður er nú svo duglegur, þarf ekki að spyrja að því! Það er brjálað að gera í skólanum, ritgerðir, próf, fyrirlestrar.. þetta blessaða miðannamat að fara að detta inn, þá er alltaf brjálað að gera. Ég get ekki beðið eftir 12 des og að fara heim og baka með mömmu og þrýfa og hafa það aldeilis gott

.
Ég er að fara heim á fimmtudaginn, í Skírn hjá litlu snúllunni minni á laugardaginn, hlakka svooo til að hitta þau öll og geta loksins hætt að kalla hana litlu snúllu. Þetta verður YNDISLEG helgi, ég finn það á mér!
annars nenni ég ekki meir.. bara láta vita að ég er ekki alveg hætt að blogga sko !
bestu kveðjur til Íslendinga frá bókasafninu í VMA.
Kristján Tryggva og landafræðin bíða, VÚBBÍ!
Bleeess..
Þuríður Björg Wiium Árnadóttir
18. september 2008 klukkan 17:23
Mbl.is segir 10C° á Akureyri.. ég myndi frekar gíska á -10°C. Hlíðarfjall er að verða hvítt og veturinn er sko farinn að láta sjá sig. Það er ískalt! Í staðin fyrir dugnað og rækt í dag þá er ég í náttbuxunum, uppi í sófa og ætla aldeilis ekki að fara héðan í dag. Ég er farin að kvíða vetrinum, ég nenni ekki að fá snjó, jú kannski í 2 daga en þá fæ ég leið. Það er allt svo miklu erfiðara á veturna. Þegar það fer að vera dimmt 16 tíma á dag, jiminn.
Ég er á leið heim í fjörðinn fagra á morgun, ég er með svo mikla ástarsýki á Vopnafirði þessa daga, langar bara heim til múttu, auðvitað spilar það inní hvað mig langar í Egilsstaði að knúsa nýju frænkuna og hitta alla þar :) Hún er algjör mús þessi litla frænka mín, ég ætla að setja inn myndir af henni allavega í albúmið.. getið kíkkað á það :) en já, ég ætla heim um helgina, svo er planið að flytja inn til Andreu í næstu viku og fara svo aftur heim eða suður þarnæstu helgi, vegna þess að laganeminn á heimilinu er að fara til Skotlands, á St. Andrews að keppa á heimsmeistaramóti áhugamanna í golfi. Haldiði að þetta sé snillingur sem ég bý með eða HVAÐ? haha
Ég fór í klippingu í gær, klippti toppinn smá og er MJÖG sátt. Kolla er náttúrulega snilldar klippari, mæli með henni !
Skólinn gengur vel, allavega bara búin að fá 8,9 & 10 úr því sem komið er, sem sagt verkefnum og kaflaprófum og svona, hef eiginlega ekki áhyggjur af neinu nema kannski Líffræðinni, þarf sko heldur betur að setjast niður og LÆRA í þeim áfanga.. læralæralæra. Ekkert bara lesa og muna.. LÆRA.
Jæja.. ætla að henda inn myndum af lillunni :) ætti kannski að taka myndir af íbúðinni og setja inn líka, ahh þarf að taka til fyrst.
Heyrumst allir, ég er byrjuð aftur.. lofa .. næstum.
Nýjust & sætust.
Litla nýja prinsessan á líka sætustu systur í heimi.
Lag dagsins :
You make it real for me
And I'm running to you baby
You are the only one who save me
That's why I've been missing you lately
Cause you make it real for me
James Morrison - You make it real.
Þuríður Björg Wiium Árnadóttir
17. september 2008 klukkan 10:37
Já bíðið bara..
ég er komin aftur..
ég veit þið eruð spennt..
reyndið að stilla ykkur.
p.s. ef þið þurfið að gráta, horfið á 3 þátt í 6 seríu af One Tree Hill. Ég sver það, ég var með ekka í klukkutíma eftir þennan þátt ég grét svo mikið, og ég er ekki að ýkja!
p.s.s ég á sætustu nýju frænku í heimi, ótrúlegt hvað ég á falleg frændsystkin, þau eru í alvuru best.
p.s.s.s. ég blogga í kvöld.. vona ég.
OTH, hinn heimurinn minn ;
Whitey :
,,The important thing is not to be bitter over life's disappointments. Learn to let go of the past, and recognize that every day won't be sunny. And when you find yourself lost in the darkness of despair, remember, it's only in the black of night that you see the stars, and those stars lead you back home."
Þuríður Björg Wiium Árnadóttir
21. ágúst 2008 klukkan 22:36
Já ég sit hérna og blogga í tilefni þess að mér leiðist það mikið að ég nenni ekki einu sinni að finna mér eitthvað að gera. Þessir laganemar eru bara á endalausu djammi og maður veit ekki hvernig maður á að snúa sér hérna, nei okey.
Það hefur margt á daga mína drifið síðan seinast.
Ég fór suður í einn dag til að vera viðstödd útförina hans Bjarna, hún var ofsalega fallegt og það var gott að geta kvatt hann með smá hlátri í gegnum tárin, rosalega falleg minningarræða og það mættu svo margir að kveðja hann, enda gull þessi drengur.
Ég er hætt að vinna og komin til Akureyrar, flutt inní æðislega íbúð í kjalasíðunni og ég er bara agalega happy. Ég sakna samt Vopnafjarðar og Hofsá rosa mikið, ég hef tekið ástfóstri við þessa á og vinnan var ekkert nema skemmtileg í sumar. Kynntist svooo mikið af skemmtilegu fólki og það var bara geggjað gaman! Ég var líka orðin óvenju mikið ástfangin af firðinum fagra þegar ég fór, mikill söknuður. Svo sakna ég mömmu og pabba agalega. En hér er sko gott að vera, íbúðin er glæný og rosa flott, við erum búin að koma okkur vel fyrir og mér líður rosa vel, skólinn er byrjaður, ég er í 20 einingum í skóla og 3 í fjarnámi sem er ágætt, næsta önn verður þá bara róleg. Ég er í 2 sálfræði áföngum, jeminn. Það er samt rosa gott að vera komin til ak aftur, æði að vera með Kæró og stelpunum aftur, og svo er ég eiginlega orðin of háð því að komast í bíó og að vita til þess að það sé alltaf einhver búð opin o.s.frv. Mikið óskaplega er ég samt fegin því að þekkja til þess að það sé ekki allstaðar þannig, margir sem ég kynntist í sumar voru alveg sjokkeraðir yfir því að búðin væri lokuð á sunnudögum og bara opin 6 tíma á laugardögum, og ég tala nú ekki um ríkið sem er bara opið klukkutíma á dag, til hvers að hafa það opið lengur? Og að hafa opið á sunnudögum, fólk lærir þá bara að hugsa fram í tímann og við vitum að það er ekki allt sjálfsagt. Það kemur fyrir að það sé mjólkurlaust á vopnafirði eða kannski ekki til sykur, fólk verður að geta bjargað sér. Mér finnst vera til of mikið af fólki sem er of góðu vant og getur ekki bjargað sér, sorglegt.
Allavega, vangaveltu þura ætlar að finna sér e-ð sniðugt að gera.
Kv. Þura sem er alveg að verða stóra frænka aftur :) vííj..
p.s. ég sakna heiðrúnar svo mikið að ég fer að umturnast.
Þuríður Björg Wiium Árnadóttir